Jæja... Frekar gott með þessi blessuðu jól !
Ahh.. Við litla familían höfðum það aldeilis gott, tókum því reglulega rólega, með frekar busy skedjúli samt.. Vorum í Mosó í jólamatnum, fengum aspassúpu, hamborgarahrygg og toblerone ís -- alveg heeví fínt..
þar voru tættir upp pakkar og maturinn meltur og þá héldum við á vit ævintýranna um kl.21 og fórum heim til mömmu og pabba.. Þar var aldeilis stemning, fólkið rétt byrjað að opna pakkana (soldið öðruvísi hraði í gangi á þessum heimilum,hehe) Og við vorum þar til að verða 12, pakkaflóð og margir kossar.. Fékk voða fína pakka, þar helst fékk ég (ALGERLEGA óvænt og ég var SVO hissa) iPod Nanó, special edition takk fyrir... rauður á litinn og ágóðinn var til styrktar HIV baráttunnar í Afríku... Ekki bara flottur iPod, heldur góður málstaður ! Fékk tvær peysur, kjól, Scrubs 2.season, fáránlega mjúka sokka sem ég hef varla farið úr, náttkjól (ekki farið úr honum heldur nema í ítrustu neyð
og frá Jónasi fékk ég Alice diskinn með Tom Waits, sem er uppáhalds diskurinn minn og ég átti hann ekki nema í iTunes (lame),ansi hreint djúsí tískubók um trilljón fatahönnuði og tvo miða á sinfó í apríl !!! Helvíti fínn á því kallinn.. Finnst pakkinn frá mér missa aðeins kúlið við þetta flóð hans en ég gat honum National Geographic Portrait bók einhverja, mega fancy...

Svo voru það bara jólaboð,jólaboð,jólaboð.. Gabríel var svo yndislegur í öllum boðum, það var varla einsog hann væri þarna ! Sem er ansi weird miðað við að hann er ansi líflegur, þriggja ára strákur !!!
Fórum svo með hann á leikskólann eftir hádegi í dag, örfá börn og við með smá móral en við þurftum bæði að læra, er að klára að vesenast í skýrslunni um Madeleine Vionnet, á eftir að skanna inn collectionið mitt, búa til heimildaskrá og setja upp mood board á A4... Þar hafiði það !!
Jólatréð okkar er pínupons...hihihihi..... alveg hlaðið skrauti og ansi bústið, bara alveg einsog það á að vera!
Við Jónas byrjuðum á Arrested development í gærnótt, djöööööööfull eru þetta fyndnir þættir !!! Dr.Funke og Buster eru klárlega fyndnastir...samt allir mega góðir.. George Michael alltaf solid nafn 
Skólinn byrjar aftur 7.janúar... Okkur til mikilla skelfingar var Jónas að fá töfluna sína fram í febrúar og ég reikna ekki með að ég muni sjá neitt framan í hann í ansi langan tíma!!! Er bara komin með töflu fyrir 2 vikur, verð í þrykk kúrs, búa til print osfrv..held það verði ótrúlegt stuð... Er aftur komin með soldið "hots" fyrir fatahönnunni, ég var nánast algerlega búin að ákveða að hætta þessu en eitthvað togar mig til baka
Ég ætla ekki að taka neinar drastískar ákvarðanir, leyfi þessu bara að rúlla , njóta þess as we go along og sjá hvað THE UNIVERSE BRINGS TO ME ... Hehehe.. ég hugsa jákvætt, það er allavega skárra en annað!
Við hin hjónin (Lilja og ég) fórum á rennsli hjá Jesus Christ Súperstar liðinu fyrir akkúrat viku síðan ... Vorum reyndar svo gáfaðar að borða á Serrano rétt áður og ég hélt ég þyrfti að fara heim nokkrum sinnum yfir sýninguna því mér var svo hriklaega illt í maganum (What's new pussycat whooowhooo) En við skemmtum okkur VEL, flissuðum yfir hinu og þessu en stúlkurnar voru náttúrulega lang flottastar (Erla J, Hreindís og María) TAKK fyrir boðið og ég hlakka til að koma aftur....
og aftur og aftur osfrv.. hihihi...
Allt í drasli. Allt út um allt. Jólapakkarnir hans Gabríels flæða hér útum allt og varla hægt að stíga um fyrir dóti. Yes. Alveg einsog það á að vera...
Ætla að halda áfram að vera dugleg.. pabbi er víst með stórsveitinni að spila í kastljósinu..frekar kúl !! ERla